Experience the Viking within
Könnun
Sumarið er ?




Áhugaverðir Linkar
10.11.2008 13:26:51 / sirvaldi

Ekki krepputengd fyrirsögn

Langt síðan síðast.

Við Sólveig kíktum í 20 vikna sónar um daginn og fengum þar að heyra ýmsar staðreyndir um barnið okkar.

  • Það er stelpa
  • Mjög heilbrigð stelpa

Það var þetta tvennt sem ég tók mest eftir og það eina sem skipti í sjálfu sér máli.  Sólveigu var seinkað um 3 daga og er sett 21. mars, sem er mjög sniðugt þar sem systir mín á afmæli 22. mars og nafna hennar hún amma 23. mars.  Við höfum verið að velta fyrir okkur ýmsum nöfnum en ekkert er en fast enda ekkert einfalt verkefni að finna nafn á einstakling sem verður að sætta sig við það alla sína ævi.  En ég veit hvað ég ætla ekki að skíra hana og það er Sveinsína.

Ég horfði á fótboltaleik á laugardaginn, og þar tókust á Arsenal og Manchester United.  Leikurinn fór einsog ég hefði viljað og Arsenal tóku sigurinn 2-1.   Konni, Rúnar og Kári voru ekki parsáttir sem er svosem skiljanlegt þar sem Man Utd. áhangendur eru yfirleitt hrokafullari en fólk er flest, svipað og KR-ingar.

Sindri Njáll á afmæli í dag og vil ég óska honum til hamingju með það en hann er 21, sem er þannig séð ekkert merkilegt hérna á Íslandi en í Bandaríkjunum þykir það nokkuð merkilegur aldur.

Styttist í jólaprófin en drög af próftöflu voru sett upp í skólanum og dag, ég er búinn 11. Des og þá ætla ég að verða búinn með fjölbraut að eilífu, nenni ekki að hanga í einhverjum 3-5 einingum á næstu önn.  Skólaleiðin er farin að segja virkilega til sín og er það bara barátta við samviskuna á hverjum morgni að hafa sig uppúr rúmminu.  Eftir áramót veit ég ekki hvað ég geri, kannski verð ég atvinnulaus að hluta eða ekki.  Það á allt eftir að koma í ljós og gerir það í janúar.

Hvað eigum við að skíra stelpuna ?


» 16 hafa sagt sína skoðun

23.09.2008 13:49:21 / sirvaldi

JOB

Fyrir u.þ.b. 2 vikum sá ég fram á aðeins minni salti í grautinn næstu mánaðarmót þar sem ég hafði bara eina vinnu og hún gefur svosem engar stórupphæðir.  En núna er öldin önnur, ég er kominn með þrjár vinnur og saman ættu þær að gefa ágætis skilding, allavegana nóg til að borga reikninga og eiga svo eitthvað eftir.  

Í þessum skrifuðu orðum sit ég í barnaskóla Árskóla með krakkana í 3. bekk í tölvutíma.  Ég fékk vinnu í árvist og fíla það mjög vel, öðruvísi en það sem ég hef nokkurntíman. Árvist er staður þar sem 80+ krakkar  í 1.-3. bekk hittast eftir skóla og eru þar mislengi meðan foreldrar eru í vinnunni. 
Svo fékk ég líka vinnu á barnum sem barþjónn en ég veit ekki hvernig það á eftir að fara, vann á föstudaginn síðasta og líkaði bara fanta vel og vonandi get ég fengið einhverja aukavinnu þarna. 
Árvist er alla daga frá 13-14:30 sirka en stundum frá 12-16.  Bara eftir því hvað ég er beðin um.  Svo er ég líka á flugvellinum á kvöldin. 

Fór suður á laugardaginn með Konni, Kristó, Halla og Guðna en tilgangurinn var Tindastóll - ÍH.  Tindastóll tapaði með einu marki gegn engu enda veðrið þarna glatað.    Skiptist á með hagléli, og rigningu en alltaf var vindurinn mikill.   Á heimleið voru opnaðir nokkrir öl og spjallað um daginn og veginn.  Síðar um kvöldið var skellt sér á barinn.

Allt gengur vel hjá okkur Sólveigu, kellan er búin að vera pínu slöpp uppá síðkastið en ekkert alvarlegt,  hún er kominn 15v á morgun.  Erum komin með síðu upp sem Sólveig ætlar að sjá mestmegnis um en ég mun líka aðeins gera eitthvað.  www.barnanet.is/hermannsbarn <-> taliði bara við annaðhvort okkar um password.

Nóg af því, ég kveð héðan úr Árskóla. 

» 3 hafa sagt sína skoðun

03.09.2008 16:30:33 / sirvaldi

Langt síðan

Það er liðinn rosalegur tími síðan ég bloggaði síðast og hefur svo sannarlega mikið gerst síðan þá.  Versló kom og fór með allri sinni dýrð og var það skemmtileg helgi einsog alltaf, fór á sigló og náði að plata þangað aragrúa af vinum með.

Skrítið þegar maður lætur líða svona langt á milli blogga þá man maður svo agalega lítið sem hefur gerst.  Ég er kominn með íbúð í Raftahlíðinni ásamt Sólveigu og erum við að leigja af Óskari og Guðrúnu Eik, héldum gott innflutningspartý fyrir busaball og veit ég ekki betur en að fólkinu sem boðið var hafi skemmt sér vel.  Skólinn er kominn á fullt og er ég á minni síðustu önn, er í 15 einingum plús 2 íþróttum.  Þannig að ég fer á kaldan og grimman vinnumarkaðin eftir áramót. 
Ætla að reyna að fá vinnu í löggunni eða þá steinullinni það á allt eftir að koma í ljós líka.  Núna er ég að vinna í því að koma mér í form.  
En það sem ber svosem einna hæst í fréttum þessa dagana er að ég skaut og hitti í mark, og þú mátt túlka það á þinn eigin hátt en í því felst að Sólveig á eftir að stækka á næstu mánuðum8)

Kem með næsta blogg bráðlega, þangað til.. sjáumst    

» 12 hafa sagt sína skoðun

10.07.2008 22:23:36 / sirvaldi

Hver er þessi vakthafandi læknir ?

 Svarið fann ég á vísindavefnum.

Það sem við teljum okkur vita vita um Vakthafandi Lækni (VL) er að hann á heima á Stökustað sem oft er minnst á í veðurfréttum. Nánar tiltekið eru hnit hans sem hér segir:
Vakthafandi Læknir
Séstvallagötu 13
999 Stökustað
Sími 7913000, t-póstur rinkeal@idnafahtkav.org
Eins og ráða má af tölvupóstfanginu kemur það fyrir að VL æpir, enda fullyrða norskir lögreglumenn að hann hafi stolið Ópinu eftir norska spaugarann Munch, en um hann höfum við fjallað í löngu máli áður á Vísindavefnum. Vakthafandi Læknir er smekkmaður og drekkur eingöngu vígt vatn. Eins og glöggir áheyrendur vita er "honum" þágufallsjúkur með eindæmum enda étur hann mörgæsir. Í sumarfríum hefur sést til hans á Mont-Ras sem er vinsæll staður meðal hollenskra náttúruunnenda.

Vakthafandi læknir í góðra vina hópi, líklega staddur á Mont-Ras. Þetta er eina myndin sem vitað er til að hafa náðst af Vakthafandi Lækni.

Þegar hann er ekki á tali við fjölmiðlamenn sönglar hann Bimbi rimbi rimm bamm og stærðfræðingar telja að hann sé eini maðurinn sem hafi reiknað út hornasummu einhyrnings með því að nota eingöngu frumtölur.

Við ráðleggjum öllum þeim sem vilja hitta Vakthafandi Lækni að halda í vestur og komast þannig fyrir austan sól og sunnan mána. Ef menn nenna því ekki þá geta þeir reynt að troða sér um tær og prófað að sitja einhvers staðar annars staðar en á rassinum með því að fylgja leiðbeiningum Vísindavefsins.

» 4 hafa sagt sína skoðun

26.06.2008 17:49:16 / sirvaldi

Drepið arkitektin

Já ég var að koma frá stað sem ætti best heima nálægt himnaríki, Marmaris.  Fór þangað með 15 öðrum í útskriftarferð. Flogið var út snemma morguns 26. Maí.

·         Flugum til Frankfurt í Þýskalandi þar sem við tók flugstöð á stærð við Sauðárkrók

·         Þar var „stoppað“ í 2 og hálfan tíma, myndi ekki kalla þetta stopp því að við tók leit af hliðinu.

·         Svo var förinni heitið til Tyrklands

·         Lentum á Dalaman flugvelli og fórum í tveggja tíma rútuferð á hótelið okkar

·         Þegar komið var á hótelið var fengið sér öl

·         Konni gerði næturvörðin reiðan á fyrsta kvöldi með því að fara ofan í laugina eftir lokun

·         Hann hafði ekki séð neitt ennþá þessi blessaði vörður

·         Daginn eftir var dagurinn tekinn þokkalega snemma og rölt niðrá strönd

·         Eitt það fyrsta sem við gerðum þarna var að leigja hjólabát, það var gert svona 5 sinnum

·         Kvöld númer tvö var tekið á svokölluðu Bar Street, sem að mínu mati er ofmetið

·         Alltof dýrir drykkir og leiðinlegir dyraverðir

·         Ég náði að rugla löggu til að rétta mér skammbyssuna sína.  Hápunkturinn

·         Reynt var að selja mér og Konna eiturlyf allavegana tvisvar.

·         Okkur var boðin hóra á kaffihúsi um hábjartan dag

·         Við leigðum okkur spíttbát,  þrisvar. 12000 kall hvert skipti

·         Ég, Guðni og Konni fórum í sér siglingu þar sem ókeypis bjór var og okkur leyft að flegja okkur í hafið

·         Við kláruðum bjórinn um borð

·         Uppgötvuðum annan bar sem kallast Beach Club og var svo mun skemmtilegri.

·         Fórum í froðupartý, það var blautt

·         Fór í Parasailing ásamt Konráði, pínu gay en samt ekki þar sem þetta var meira extreme

·         Nikki og Snævar reyndu að grilla Rolex úr.

·         Síminn minn þurfti að fara í viðgerð um leið og komið var heim á Ísland

·         Konni á heiðurinn á því

·         Á leiðinni heim var komið við í Englandi til að taka bensín

·         Mjög gott að lenda á Íslandi

 

Þessi ferð var geðveik í alla staði og ég held það geti engin neitað því sem í hana fór.  Ég segi einsog Konni, ef þið viljið vita meira þá megiði bara bjóða mér í kaffi því að það er hægt að ræða þessa ferð lengi vel.

Myndir eru á síðum hingað og þangað, mínar eru á facebook

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

25.05.2008 16:07:34 / sirvaldi

Ísland

Það er langt síðan síðast.  Og síðan síðast hefur gerst ýmislegt.  Júróvísjón var í gær og lenti Ísland í 14. sæti, sem er u.þ.b. það sem ég var búinn að spá okkur.  Þessi keppni er einsog svo margir eru að segja ekki lengur um hæfileika heldur pólítík, og það sýndi sig og sannaði sig í gær þegar maður gat hálfpart sagt um hverjir fengu stigin frá hverjum.

Systir mín kom ásamt sinní grúppu á fimmtudag og fór núna ekki fyrir löngu, hún kom með krúttlega barnið sitt sem nýfætt og sætt. Og svo hin tvö sem eru ekki eins nýflædd en sæt samt sem áður.
Í nótt mun eitthvað yndislegt gerast, og ég veit hvað það er.  Ég er að fara til Tyrklands ásamt 15 öðrum held ég. Í svokallaða útskriftarferð, ég mun verða sóttur á Blönduós af Jóa og gagnkynhneigða lífsförunauta hans Örnu og munum við bruna saman út á flugvöll.
Vélin á að fara í loftið hálf 7 eða hálf 8, er ekki alveg viss en það mun reddast.  Ég er frekar stressaður um að ég eigi eftir að gleyma einhverju mikilvægu einsog vegabréfi eða vísa kortinu, það væri vandræðalegt að vera kominn út á völl og átta sig á því að þú hefur ekki það eina sem þú þarft að hafa.

Sólveig er farinn út til Kanada að skoða land og annað fólk og kemur ekki heim fyrr en 19. júní.  Það er ekkert gaman að vera hér einn í mánuð en maður harkar þetta af sér.  Ímynda mér bara að hún sé á frystitogara það er eins.

Ég er búinn að vera með lag á heilanum í allan dag, og það mun sennilega ekki losna fyrr en ég lendi í Tyrklandi en lagið fer einhvernvegin svona "Gekk ég yfir sjó og land og hitti þar einn gamlan mann, sagði svo og spurði svo hvar áttu heima, ég á heima klappalandi klapplandi...." Einhvernveginn svona.

En nóg komið af bloggi, ég skelli inn haug af myndum og drasli þegar ég kem heim. Þangað til, góðan daginn, gott kvöld og góða nótt.

» 5 hafa sagt sína skoðun

11.04.2008 01:13:22 / sirvaldi

Ég er tvítutugur í dag

Ég er tvítugur í þessum töluðu orðum og er búinn að vera það í rúman klukkutíma og hef verið að rifja upp staðreyndir um mig.  Gjörið svo vel. 

Ég heiti Hermann Valdi Valbjörnsson

Ég hef lifað í 20 ár frá og með deginum í dag

Ég á tvö eldri systkin

Ég er Hrútur

Valbjörn 28 ára og Lárey 31 árs.

Foreldrar mínir heita Álfhildur og Valbjörn

Ég er í fjölbrautarskóla á Sauðarkróki

Ég ætla að útskrifast næsta haust.

Ég fæddist á Siglufirði 11. Apríl 1988

Ég kom ekki í heiminn auðveldlega og lét móðir mín næstum lífið við að fæða mig.

Þegar ég var yngri ætlaði ég ekki að byrja að drekka fyrr en 17 og aldrei að reykja. 

Ég byrjaði að drekka 16 og hef reykt.

Ég hef nefbrotnað tvisvar, einusinni þegar ég datt af hjóli og síðast Verzló 2006 þegar ég var kíldur í götuna.

Það fyrsta sem ég fæ mér í íbúðina þegar ég fer að leigja verður köttur.

Ég hef bara farið í tvær  jarðafarir á ævinni, og tvær giftingar.

Mig langar til þess að vinna í löggunni og sjá hvernig það er.

En ég nenni ekki að koma mér í form

Minn mesti ótti er að missa syskini mín

Ég er tölvufíkill og verð auðveldlega háður einhverjum tölvuleik

Einnig er ég skemmtanafíkill og geri fátt skemmtilegra en að drekka bjór í góðra vina hópi.

Mig langar til þess að kunna á píano

Ég hef bara átt tvær kærustur

Og ég er með þeirri síðari núna og heitir hún Sólveig og býr á Vatni.

Ég er Arsenal maður og hef verið það alla tíð

Ég átti heima á Sigló í rúm 10 ár, Reykjavík í um 5 og Blöndósi í um 4.

Ég ætla að flytja suður þegar ég klára stúdentinn

Ég lærði á þvottavél úti á sjó þegar ég var 18 ára.

Það er alltof margt sem mig langar í og langar til að gera en skortir pening

Ég hef átt 3 bíla, Nissan Almeru, Hondu Civic og nýjast Toyota Avensis.

Ég er alltaf svangur, og er alltaf étandi en þyngist ekki um gramm.

Ég trúi á líf eftir dauðann en ekki endilega guð

Ég hef aldrei lent í bílslysi þegar ég er við stýrið og í órétti.

Ég hef fengið bíl aftan á mig, ég hef verið í bíl sem hefur farið útaf og velt 2-3 veltur. Og ég hef verið í bíl sem hefur keyrt á ljósastaur.

Bróðir minn gaf mér fyrsta gsm símann minn þegar ég var 12-13 ára.

Ég átti 2000 króna inneign í 3 og hálfan mánuð

Ég er ennþá með sama símanúmer.

Ég byrjaði að fara inná skemmtistaði í Reykjavík 17 ára.

Og geri það enn.

Ég reiddist foreldrum mínum mjög mikið þegar mér var tilkinnt að við værum að fara að flytja á Blönduós

Ég sé ekki eftir því í dag.

Ég ætla að ala börnin mín upp á landsbyggðinni.

Ég hef farið til Englands, Skotlands, Portúgal, Kanarí, Spánar, Danmerkur, Svíþjóðar, Noregs og Vestmannaeyja.  Næsta ferð er til Tyrklands 27. Maí í útskriftarferð.

Ég er vinur vina minna

Ég er þokkalega friðsamur náungi, nema þegar ég þarf að vera annað.

Uppáhaldslagið mitt þessa dagana er Enjoy the Silence með Depeche Mode

Ég náði bílprófinu með eina villu í B-hluta.

Ég ætla að fá mér mótorhjólapróf þegar ég hef efni á því.

Ég æfði fótbolta í 7 ár og skíði í 5.

Æfði með KS og svo með Fjölni, varð meðal annars Reykjavíkurmeistari með þeim.

Ég hef unnið við ýmislegt, t.d. Unglingavinnunni í Rvk, Sjúkrahúsinu á Blönduósi,  Essó á Blönduósi, farið á frystitogara og ísfiskara, Shell á Króknum, Málað með málarameistara.

Núverandi vinnan mín er hleðslumaður á flugvelli.

Ég fíla flest alla tónlist, nema öskurrokk það er ekki tónlist.

Ég hef farið á tónleika með Blood Hound Gang ,Rammstein, Scooter, Korn, Metallica, Incubus, Foo Fighters, Queens of the stone age, Iron Maiden og Sigur Rós.

Næstu tónleikar sem ég ætla á eru á James Blunt.

Þegar ég var lítill var ég alltaf að slasa mig og hef þó nokkuð mörg ör til að sanna það.

Var lagður inná borgarspítalann þegar ég var 6 ára gamall í viku ef ég man rétt með sýkingu í nefinu sem hefði getað leitt mig til dauða.  En ég er enn hér svo hún gerði það ekki.

Ég ætla einhverntímann að kaupa mér hús á Siglufirði.

Ég er með tattú, reyndar 5, en þau eru í röð og þýða Valdi.

Ég fékk mér gat í eyrað þegar ég var 6 ára, og svo annað þegar ég var 8 ára.  En fékk svo leið á þessu þegar ég var 11 ára og hef ekki sett í mig lokk síðan.

Ég er þeirrar skoðunar að fólk geti ekki dæmt það sem það hefur ekki upplifað eða prófað.

Uppáhalds bjórarnir mínir eru Thule og Lager, svo kemur Carlsberg sterkur inn líka. 

Ég get ekki drukkið dökka bjóra

Það sem ég versla einna helst á börum er tvöfaldur vodki í burn.

Sem ég ætti kannski að gera minna því að glasið kostar 1200

Ég á ekki marga óvini

En ég á marga vini

Besta bók sem ég hef lesið er Röddin eftir Arnald Indriðason

Er núna að lesa Vetraborgina

Ég hef átt 5 gsm síma í 7 árum.  Tveir hafa dáið og hinir eru oní skúffu.

Ég fékk hugmyndina af svona bloggi hjá systur minni

Skemmtilegasta djamm sem ég hef nokkurn tíman farið á var verzló 2006, sunnudagskvöldið og mánudagsmorgun.  Þegar ansi efnilegur hringur var kominn saman.

Heimasíðan sem ég skoða mest af öllum er sennilega www.mbl.is

Ég er frétta fíkill og verð að fylgjast með hvað er í gangi.

Ég hef lokið 106 einingum í skóla, eftir þessa önn á ég bara 16 eftir.

Ég fæ stundum peningakvíða því ég á ekkert rosalega mikið af þeim og finnst ekki gaman að skoða heimabankan minn þegar reikningar koma.

En það reddast allt á endanum.

Uppáhaldsfagið mitt í skólanum var sagnfræði.

Mig langar til læra að vera lögga, fornleifafræðingur, sagnfræðingur eða flugmaður

Valið stendur á milli þessara faga, þangað til annað kemur í ljós þ.e.a.s

Ég er letidýr og fresta flestu þangað til ég þarf að gera það.

Uppáhaldsmaturinn minn er grillaður skötuselur vafin í beikon.

Það var erfiðara að gera þennan lista en ég bjóst við.

Mér líður vel.



Ég ætla að enda þetta blogg á myndbandi frá skotlandi.. smellið á linkinn

http://www.youtube.com/watch?v=sKLyPZJnHkY


» 9 hafa sagt sína skoðun

05.03.2008 21:28:26 / sirvaldi

Last king of Scotland

Það var gert ágætis magn af hlutum í síðasta mánuði, farið á árshátíð, skemmt sér með vinum, kíkt á ball, farið á SUS fund og margt margt fleirra.  En það sem er sennilega kirsuberið á toppnum er Skotlandsferð sem við í ensku 703 fórum í 14. feb til 17. feb.

Ég fór ásamt, Sindra, Konna, Ásu, Adda penis og B-Magz,  flogið var út eldsnemma á fimmtudags morgni frá Leifsstöð, áttum flug klukkan 07:45 minnir mig.  Þegar komið var á Leifsstöð var snarað úr tveimur bjórum.  Ása gat lítið tekið þátt í því vegna morgun ógleði.  Flugið til Skotlands tók ekki langan tíma, rúman einn og hálfan tíma, þegar lennt var og gengið útúr flugvélinni kom ekkert annað til greina en að taka fyrstu armbeygjurnar á Skotlandi.  Tekinn var leigubíll uppá hótel, checkað sig inn en ég og Konni þurftum að bíða í 30 min eftir að fá herbergið okkar einhverra hluta vegna, þannig að tíminn var notaður og fengum við okkur McDonalds, og ekki í síðasta sinn í þessari ferð.  Svo var skellt sér í búð sem var svona einsog Skaffó, hét Sommerfield og hún seldi bjór.  Keyptur var smá bjór, snarað úr einum tvem og lagt sig svo. Biðin eftir herberginu var alveg þess virði þar sem að útsýnið var fallegt, betra en útsýni hinna krakkana þar sem það var bara ógeðslegir lestarteinar og vesen. Við vorum fljót að komast að því að ekki voru ískápar í herbergjunum þannig að við gerðum  það sem allir snjallir íslendingar hefðu gert.  Kalt vatn látið renna í bað.

Sommerfield var svona sú mest heimsótta af öllum búðum sem við fórum í, var farið minnsta kosti tvisvar á dag í hana að ná í bjór, og Konni var oftar en ekki spurður um skilríki, af sömu leiðinlegu kellingunni.

Manni leið samt stundum einsog hálfvita þarna þegar maður fór á skyndibitastað og gat ekki skilið orð af því sem þessi skota kvikindi voru að tauta, gat ekki pantað mér hamborgara án þess að lenda í misskilningi.  Eina liðið þarna sem gat gert sig skiljalegt var menntafólkið, t.d. yfirmaður á veitingastað. 

Fyrsta kvöldið var fimmtudagskvöld, vorum uppá herbergi að sötra, spjalla og allt það sem ungt fólk gerir þegar hitað er upp fyrir skemmtanalíf.  Ása fór snemma í háttinn og við fórum á skemmtistað sem heitir Bamboo's minnir mig, mögnuð stemning þar, þvílík hiphop/techno stemning. 

Töluðum við haug af liði og lugum af mörgum að við værum sjónvarpsfólk frá Íslandi að gera heimildamynd um næturlíf í Evrópu og Glasgow væri núverandi viðkomustaður.  Ég kinntist einnig tveim bræðrum.

Konni setti stöngina þokkalega hátt þetta kvöld enda ógeðsdrukkinn, lítið annað en tvöfaldur vodki í red bull drukkið á barnum.  Sem ég vil vara við hér og nú því að þetta er drykkur sérhannaður fyrir þynnku.


Þetta var gott kvöld og þegar heim var komið átti Konni ekki mikið líf eftir og hans síðustu orð voru eitthvað um "tussur".  Skömmu síðar fjaraði hann út.

Daginn eftir var vaknað, skellt sér í Sommerfield og náð sér í vatn og gos.  Fengum okkur að éta og skoðuðum okkur um, kíktum í "Kringluna" og ég verzlaði mér Celtic treyju og eina Arsenal treyju.  Og Ipod fyror Sólveigu í einhverri búð.
Þegar við komum aftur á hótelið var safnað smá kröftum snarað úr einum og farið svo á Pizza hut.  Eftir mat var smá drykkja hafin og ég tók eftir borðinu í herberginu hjá mér og Konna og gat ekki annað en smelt mynd.


Þetta er þokkalega impressive.

Föstudagskvöldið var skemmtilegt einnig en ég fer ekkert nánar út í það á netinu.  Áhugasamir megið hafa samband í gegnum síma, í skólanum eða á msn. Ég ætlaði ekki að brosa á neinum myndum sem teknar voru á laugardeginum og það gekk frekar vel, og eiginlega bara út ferðina eftir það, og það tóku fleirri þátt í því en ég.
Laugardagurinn fór í þynnku, kaup á drasli og kringlurölti, pound shop, pound planet og svoleiðis búðir voru skemmtilegar og ýmislegt áhugavert keypt þar.

Konni með hatt og boga sem verzluð voru í búðinni í baksýn.

Geðveik verð í alla staði og mæli ég með því að allir kíki einhverntímann til Glasgow eða bara útlanda yfir höfuð í góðra vina hópi það jafnast ekkert á við það.  Farið í Ensku 703.

Minni einnig á myndirnar allar frá skotlandi eru á www.facebook.com .. fáið ykkur account þar og njótið

» 3 hafa sagt sína skoðun

04.02.2008 16:33:43 / sirvaldi

We don't know what it is, but it's winning.

Það hefur ýmislegt gerst í mínu lífi undanfarna daga, ég bókaði ferð til Glasgow, en þangað fer ég ásamt meistara Adda pé, Sindra, Atla, Konna, Ásu Maríu og Birni Magnússyni.  Farið verður suður 13. febrúar og flogið út snemma á fimmtudeginum 14. feb, gistum á hóteli sem heitir Jury's Inn og samkvæmt myndum sem ég hef séð er þetta fínasta hótel.  Heimkoma er svo 17. feb.   Þetta er ekki eina utanlandsferðin sem ég fer í ár, neinie heldur verður skellt sér til Marmaris í Tyrklandi 27. maí næstkomandi, ásamt þokkalegum hóp fólks, og er hún í tvær vikur.  Verðum á hóteli sem heitir Club Anastasia og er aftur, samkvæmt myndum að dæma geeeeðveikt. 

Ég lennti í því um daginn að fá aftan á mig bíl, ekki aftan á mig persónulega heldur fékk bíllinn minn að finna fyrir því.   Skekktist skottið á greyinu, og stuðarinn eyðilagðist, og kostar hvorki meira né minna en 160 þúsund kell að gera við hann.  Sem er svosem ég lagi þar sem ég þarf ekki að borga aur, hvað þá krónu.

Ég er kominn með nýja vinnu hjá Flugfélaginu Erni.  nei ég er ekki flugmaður, heldur betra.  Ég er burðardýr, eða þú veist.  Fæ að halda á tveim flottum ljósum og gera getnaðarlegar hreyfingar með höndunum og leggja flugvélum við flugstöðina.  Sem er alveg skemmtilegt.  Þetta er fjórum sinnum í viku og er klukkutími í senn, vel borgað og hentar mér fínt. 

Fór á Akureyri um daginn í skemmtiferð, kíktum í bíó á myndina Cloverfield, og vá, það er góð mynd, heavy epic.  Er um eitthvað skrímsli sem kemur einsog í svo mörgum myndum í heimsókn til New York og er með vesen, vægast sagt, að rústa öllu.  Mæli með henni.

Ætla nú ekki að hafa þetta lengra að sinni, verið sæl. 

 

 

 

 

 


» 9 hafa sagt sína skoðun

05.01.2008 01:08:30 / sirvaldi

Eye of the tiger

Ætlaði að blogga á gamlársdag en svo þegar að honum kom þá nennti ég því ekki, enda er þetta ekki dagur sem þú vilt eyða fyrir framan tölvuskjá.   Sem ég samt gerði að hluta til, þar sem ég var að levela mig feitan í LOTRO, það er bara einn hringur sem ræður þessu öllu.

Mig langar til að svara þessum spurningum sem flestir eru að setja á síðurnar sínar, finnst þær sniðugar.

hefurðu átt gott ár?
Bara flott

hvað hefur verið þitt stærsta afrek?

Fá afrek kannski, komst uppá lvl 48 í LOTRO

tekið eitthver próf, náð?
Skólapróf bara, náði öllu með stæl

búin að eiga afmæli?

já einsog á hverju ári, en þetta ár náði ég þeim áfanga að verða 19 ára. Sem þýðir ekki rass.

verið í fríi, farið í ferðalög?
Já ég fór til Svíþjóðar í Maí

hvert, hvenær?
Ég var að segja það

keypt eitthvað dýrt?
Bíl

verið í vinnu?
Já á Shell Sport, Sjúkrahúsinu á blö og eitthvað málarastöff

tekið stórar ákvarðanir?
Ekkert gífurlega, ég þurfti ekkert að ákveða hvort taka ætti foreldra mína úr sambandi eða eitthvað álíka.

misst vin eða einhvern annan nákominn?
Neihei, ég hef haft það sem vana að vera ekkert að gera það

hitt einhvern æðislegan?
Örugglega

eignast nýja vini?
Já svona í bland við þá gömlu

flutt?
Blönduós vs. Vistin

skipt um skóla?
Ekki enn

prófað eitthvað nýtt?
Já maður er alltaf að því

verið meira glaður en dapur?
Ég hef verið meira glaður

eignast óvini?
Það held ég ekki, allavega ekki neina erkióvini 

hvaða tónlist mun minna þig á þetta ár?

Myndi trúa því að það væri Forgotten Lores, sennilega afþví að ég hlustaði á þá svona undir það síðasta

hvaða myndir hefurðu séð í bíó þetta ár?

Ekki svo margar, Die Hard 4.0 allavega, Run fat boy run

hvaða kvöld var það besta?
Þau eru nokkur, sennilega öll tengd áfengisvímu.  Svo þau sem fóru í leikritið, koma sterk inn.

en það versta?
Ekki svo mörg slæm.

besti dagur?
Dagurinn sem ég uppgötvaði lækningu við aids

versti dagur?

Dagurinn sem ég týndi uppskriftinni

besti mánuður?
júní og júlí

versti mánuður?
Örugglega október

var sumarið skemmtilegt?

Mjög skemmtilegt, temmilega rólegt, samt ekki.

þú og einhver annar orðnir betri vinir?
Jámm

misst einhverja vini?
Ekki endanlega

hversu marga hefurðu kysst þetta árið?

1

lentiru í ástarsorg?
Nei

búin að gera einhver plön fyrir árið 2008?
Verða 20 ára, kaupa hjól, vinna í löggunni, klára skólann.  Svona eitt og annað dútl.

hversu marga háraliti hefurðu haft þetta ár?
Einn, legg það ekki í vana minn að lita mig, nema þarna einusinni.

fengið þér göt?
Ekki eitt einasta

tattú?
Ekki 2007, kannski 2008

breytt ímynd þinni?
Ekki neitt gífurlega held ég, ennþá sami töffarinn og ég var

saknað einhvers?
Örugglega

veistu hvað þú vilt í framtíðinni?
Segi einsog hún Ása María Guðmundsdóttir, krakkar í 6. bekk vita meira um framtíð sína en ég

sérðu eftir einhverju?
Það getur vel verið. samt ekki neinu sem ég man í augnablikinu.

 

Þá er þessi listi búinn, vonandi höfðuð þið gaman af.

Það sem ég áorkaði á þessu ári var ansi fátt, fyrir utan gott gengi í skóla.  Ég ætlaði að halda áfengisdagbók frá janúar til desember, þ.e.a.s alla mína eyðslu hvað varðar djamm og því tengt, ég ákvað að hætta með hana í lok febrúar vegna þess að tölurnar í henni voru ógnvægilegar og mig langar ekki að vita hversu miklu ég eyði á heilu ári í þessa vitleysu.  Fyrir þá sem vilja heyra þessa tölu megið bara finna mig á MSN eða taka bara upp síman, þessi tala fær ekki að kinnast internetinu.

Á döfinni er eitthvað smá, skólinn á mánudaginn til að byrja með.  Svo er kannski ekki mikið í Janúar en febrúar er pakkaður, árshátíð, þorrablót og svona eitt og annað tengt hinu og þessu ef þið skiljið um hvað ég er að tala.

Ég sór áramótaheit í fyrsta skipti á ævi minni, og það var að taka mig á líkamlega séð, fara í ræktina, drekka aðeins minna og já lifa hollara lífi.  Ástæðan er inntökuprófið fyrir lögguna sem ég er að vonast til að komast í, og ef ég kemst í það að standast það með stæl. 

Það sem stóð samt uppúr á þessari önn var leikritið, það var magnað að taka þátt í þessu.  Sýningarnar voru frábærar, mikill fíflagangur.  Lokasýningin var sennilega ein sú besta sem þessi skóla hefur orðið vitni af, og spilar Arnar Pétursson stórt hlutverk í þeirri ástæðu. 

Menningarkvöldið var mjög skemmtilegt líka, þegar við fórum 4 málaðir sem skjaldbökur í bodypaintið við mikinn fögnuð áhorfenda.  Hægt að sjá myndir af því hérna aðeins neðar á síðunni.

Ég slóst aðeins við þann græna í sumar, reyndar ekki nema bara í 6 daga en ég sigraði og hafði 100 þúsund kall af hafinu þetta skiptið, sem er alls ekkert slæmt. 

 

Ert þú með áramótaheit ??

 

 


» 7 hafa sagt sína skoðun

20.12.2007 06:46:29 / sirvaldi

Moss

Ég er búinn að vera að bíða eftir ástæðu til að blogga, og í gær kom hún loksins sú ástæða.   Ég fékk útúr prófunum í gær og viti menn, haldiði að hann ég hafi ekki bara náð öllu, þar á meðal erkióvini mínu til marga ára stærðfræði 202.  Já þannig er nú það, þetta voru sæmilegar einkunnir alveg hreint, lægsta 5 og hæsta 8.   Núna á ég ekki svo margar einingar eftir af skóla, sirka 34, sem þyðir útskrift á næsta leiti. Núna er ég bara að bíða og vona að gjöfin frá foreldrum mínum stækki til muna vegna góðs gengis í prófunum.

Jólaundirbúningurinn er búinn að vera á fullu, reyndar ekki hjá mér heldur þessum almenna Íslendingi, ég hef lítið sem ekkert gert hvað varðar þessi jól, enda er þetta ekki mesta tilhlökkunarefni ársins einsog þetta var á forðum.  Með hverju árinu fækka pakkarnir mínir undir tréinu.  Það sem ég gerði hvað varðar jólaundirbúning er að ég fór suður í 5 daga til þess að versla gjafir, og hitta fólk.  Ég fór suður á miðvikudaginn en keypti verslaði ekki fyrr en á mánudegi, ég var alveg það mikið að nenna þessu. 

Ég er með einn veikleika að ég tel, hann sá að ef ég sé eithvað sem mig langar í, þá verð ég að eignast það strax, en það sem mig langar í núna er Pit Bike, og það sem kemur í veg fyrir að ég kaupi það er peningaleysi.  Þetta var svona með bílinn minn, og ekki var ég lengi að festa kaup á honum.  Kannski mamma og pabbi sjái sér fært að verðlauna mig með hjóli vegna ofangreinds gengi í prófum ?

Áramótunum mun ég eyða fyrir sunnan í faðmi fjölskyldu minnar og er þetta í fyrsta sinn í þónokkurn tíma sem ég eyði áramótum í sódóma, hef ekki gert það síðan ég flutti þaðan 2003.  Ég er ekki alveg að nenna að starta öðru ári með Geira balli, þessi maður er ekki góður. Plús þá er bróðir minn búinn að fá sér bjórdælu í eldhúsið sitt þannig að áramótin verða að vera þar. 

Ég hef fundið nýja ást á hljómsveitinni Gus Gus, nýja platan þeirra er stórkostleg.

Glöggir menn sjá kannski að þetta er skrifað korter í 7 að morgni til, ég er örugglega ekki sá eini sem er með brenglaðan sólarhring í jólafríinu.

Kalla þetta gott í bili, næsta blogg verður sennilega bara á gamlársdag.

Gleðileg jól.

 


» 10 hafa sagt sína skoðun

02.11.2007 17:33:29 / sirvaldi

Teenage mutant ninja turtles

Menningarkvöldinu er lokið og var það tær snilld, ég ásamt þremur hughraustum einstaklingum, Arnari Péturssyn, Nikka og Braga vorum hinar ósigrandi skjaldbökur.  Byrjað var að mála okkur um eitt leitið og því svo lokið um 6-7.  Nema síðasta handbragðið var lagt klukkan átta.  General prufan tókst ljómandi vel, ég leiddi og vissi eiginlega ekkert hvað við áttum að gera þannig að við byrjuðum bara að sprikla og láta einsog skjaldbökum ber að láta, nema við hreyfðum okkur kannski aðeins hraðar.

Svona var staðan í málningarklefanum okkar.

+

Pós fyrir myndavélarnar á meðan beðið var eftir að fara á svið

Annað pós.

Svo var farið á svið, ég og nikki í grimmum stellingum 

 Gerðum fína hluti, fengum flott klapp, fargi létt af brjóstum okkar allra, stressið var alveg að segja til sín.  Ég steig á svið vopnaður pizzusneið a la Ólafshús, en hinir með sín venjulegu vopn.  Við fengum engin verðlaun en það skiptir svosem litlu máli, þetta var hella fun. 

Næsta ár er það Justice league ? eða hvað. 

Spurningin:  Getur þú sagt hver er hvað kall ?

 


» 10 hafa sagt sína skoðun

20.10.2007 15:58:26 / sirvaldi

Vörumerki sem hægt er að treysta

Ég hef verið að spá í vörumerkjum sem hægt er að treysta undanfarið, og ætla að gera hérna lítinn lista yfir þau vörumerki sem ég treysti frekar mikið.

Coca Cola company: Ef það er drykkur merktur með þessu merki þá var aðeins fagmennskan að verki þegar hann var skapaður, þó svo mér finnist þeir ekki allir góðir þá seljast þeir samt.

Colgate: það eina sem ég nota hvað varðar tannhirðu eru vörur frá Colgate.

Durex: Því að allt annað er nú bara bull, svo er voða lítið um aðrar smokkategundir hérna á Íslandi.

Egill Skallagrímsson Ölgerð: Kannski ekki alveg jafn stór og coca cola fyrirtækið en samt sem áður framleiðir þessi ölgerð frábæra drykki á borð við appelsín og víking.

Adidas: Þetta er vissulega merki í dýrari kantinum en þeir skór, buxur, peysur eða hvað sem er sem ég hef keypt hafa alltaf haldið í væntingar mínar.

EA Games: Þeir leikir sem ég hef spilað frá þessum útgáfu risa hafa allir verið geggjaðir.

 

En að öðrum málum, það hefur margt drifið á mína daga undanfarið, ég rústaði miðannarprófunum, lægsta einkunnin 7, og hæsta 9.  Datt í það á mánudegi, fór í sjómann við Konna með vinstri og það endaði ekki betur en svo að viðbeinið á Konna gaf sig undan þrýstingi og fór í tvennt.  Og er hann búinn að væra nær fötlun undanfarið, en er reyndar að jafna sig.  

Það er semi-búið að ákveða staðinn fyrir útskriftarferð, en hann er hugsanlega Albufeira, sem er í Portúgal.  Ég er mjög sáttur við staðinn, fór þangað eitt sinn er ég var barn, í fylgd foreldra minna.  En núna fer ég sem fullorðinn maður í fylgd vina. 

Hvaða vörumerkjum treystir þú ?

 

 


» 8 hafa sagt sína skoðun

04.09.2007 18:59:59 / sirvaldi

Shellari

Blogg letin hefur verið að hrjá mig undanfarið, sem og flesta í mínum vinahóp, en ég er ekki dauður úr öllum æðum, nei langt frá því, ég er byrjaður í skóla en og aftur og líkar það mjög vel, þetta skóla ár ætla ég að taka með trompi, er í 22 einingum og er búinn að mæta fanta  vel það sem af er komið.  Vona bara að það haldist út önnina.

Ég stefni á að klára þetta haustið 2008.  Þá verður kominn tími á að fullo´rðnast aðeins meira, baby steps og þetta er eitt skrefið.   Það verður samt einkennileg tilfinning að verða stúdent held ég,  vitandi að þessi ár sem fólk vill oft kalla bestu ár lífs síns séu búin.  Ég á svosem ekkert eftir að verða leiðinlegur eftir skólalok.  Ætli ég verði ekki sami gamli Valdinn en þá með stúdentsgráðu.

Ég er kominn með vinnu, eftir langa leit þá fékk ég starf á Shell Sport, þökk sé Damma, og líka Sólveigu þar sem hún var minn spokes man í þessu öllu saman.  Þetta er alltaf á fimmtudögum og svo aðra hverja helgi, sem er ákúrat það sem ég var að vonast eftir.  Mamma sagði alltaf við mig að ég gæti farið að skoða ferðatölvu kaup þegar ég fengi mér vinnu og núna er hún kominn þannig að næsta mál á dagskrá er ferðatölva.

Busavígslan var ágætlega skemmtileg fannst mér, ég fór meiraðsegja með hóp og alles, hljóp upp tröppurnar uppá nafir sem ég er mjög stoltur af þar sem að mitt þol er ekkert á við Jón Arnar Magnússon þegar hann var uppá sitt besta.   Busaballið va´r alltílagi, ekkert meira, sökum hertra reglna um áfengsneyslu inná 16 ára böllum, en til allrar lukku þá var gaman úti og fyrirpartýið var ekkert til að kvarta yfir, það var að þessu sinni haldið heim til Elsu Jóns, drukkið og sungið, magnað partý sem skartaði meðal annars dans battle á milli Gústa Long og Teits nokkurs Inga, Gústi bar sigur úr bítum enda hörku dansari þar á ferð.  Good times.

Stundataflan mín mætti vera skemmtilegri, er alla daga í skólanum til 6 nema á föstudögum, en maður verður að taka þetta alvarlega núna eftir að hafa verið mest megnis að leika sér síðustu nokkrar annir. 

Lengra verður þetta ekki.

En hvernig fannst ykkur busaballið ?


» 3 hafa sagt sína skoðun

10.07.2007 18:14:31 / sirvaldi

Jæja núna er það blogg

Ég er hættur að fresta þessu drasli, núna hlýt ég að hafa eitthvað að segja.

Ég fer ekki á sjó þetta sumarið, lýtur allt út fyrir það, ekki er það vegna þess hversu leiðinlegur ég er neii, síður en svo,  skýringin er einföld, útgerðin á línubáta nokkra, þeir kláruðu kvótan sinn, og þar af leiðandi fengu þeir sem voru á línubátunum forgang á skipið sem ég ætlaði að fara á.  En það er alltílagi, það þýðir bara það að ég geti einbeitt mér meira að því að vinna í taninu. 

Fólkið  sem ég kalla vini mína voru að koma frá Danmörku í gær, voru á Hróaskeldu hátíðinni, ég hefði viljað fara en þá hefði ég þurft að selja annað nýrað, og sennilega annað lungað líka.  Sú hljómsveit sem ég hefði verið hvað mest í að sjá þarna var Muse, en gott á þessa svo kölluðu vini mína þá misstu þeir af Muse. 

Næstu helgi er húnavaka, þá er gaman, því að þá koma mínir menn í svörtum fötum og leika fyrir dansi, sem að þessu sinni verður stiginn í Íþróttahúsinu.  Ég er nú að vonast eftir sem flestum króksurum á þetta ball þar sem ég hef ekki hitt marga af þeim í háa herrans tíð.  Reyndar hef ég gert lítið í að hitta nokkurn mann síðan skólinn kláraðist,  hef verið eina helgi hérna heima og um virku dagana er ég of latur til að láta sjá mig.  En þeir dagar taka senn enda, ég verð virkur í félagslífinu á norðurlandi vestra von bráðar. 

Ég fór að sjá Die Hard 4.0 á fimmtudaginn, ég er ekki frá því að John McClane sé einn sá harðasti í bransanum.  Þessi mynd er svo ógeðslega góð að það er ekki eðlilegt, hasar út í gegn, fleygar setningar og dauði.   Þessi mynd er eitthvað sem ég ætla að eignast á DVD.  Ég hélt að salurinn ætlaði að missa sig þegar hann böstaði "Jíbbí kæjey mothafokka", djöfull var það rosalegt.

Á laugardaginn var 07.07.07 það hefði verið illa svalt að fæðast þann dag. 

Það hafa eflaust nokkrir hérna tekið eftir því að lokin á tóbaksdollunum íslensku eru orðin blá, hversvegna ætli það sé ?  Eru þeir að reyna að láta taka eftir sér meira nú þegar reykingabannið hefur tekið gildi, eða var þetta galli í framleiðslu ?  Já maður spyr sig. 

Og hvað heitir þú ?

 


» 12 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 9
Klukkan
Dagsetning
12. mars 2010
Dagatal
mars - 2010
S M Þ M F F L
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031
FyrriNæsti
Heimsóknir
Í dag:  3  Alls: 74276